BORG ÁSTARINNARRori

Ég er að fara til Parísar í fyrramálið woo hoo.......vildi bara svona smá ...já ... monta mig Svalur híhíhí....see ya in a week yall.

Snjór snjór snjórRori

OK, ætla bara að sýna smá lífsmark hérna..........
Klikkað að gera í skólanum. Verkefnin streyma á mann eitt eftir öðru. Styttist í lokapróf og 11 dagar í vetrarfríið mitt Hlæjandi

I'm still hereRori

GEEIIIIIIISP!!!!!!!
Mér leiðist!
Ekkert framundan í skólanum nema próf og raunhæf verkefni hvert eftir öðru.
Hafði það reyndar notalegt í gær og fór út að borða í Perlunni með Alex, ástinni minni. Voðalega nice. Fyndið hvað tíminn er miklu fljótari að líða þarna þegar maður er gestur en þegar maður er sjálfur að vinna. Tíminn líður svona allavana 5 sinnum hraðar.

Bloggedí blogg bloggRori

Blogga???? Hver..........ég? Nei ég geri víst ekki mikið af því. Ekki þó af ásetningi. Ég hef um fátt að fjalla þessa dagana. Hef lítið annað gert en að vinna, vinna, vinna vinna vinna vinna.................og..........hvað fleiri..........hmm, já alveg rétt........vinna.
Hef náð að hlaupa heim milli vakta til að skipta um uniform, milli þess sem ég flýg og þjóna. Ég hef notið þeirrar lukku að fá að fara í nokkur næturflug með stuttu millibili. Það er nottla yndislegt að mæta í pikkup fimm fyrir miðnætti og drösslast heim um tíu um morguninn með tómata í stað augna og maskara niður á höku. Já það er sko ekki auðvelt. En ég hef litið á björtu hliðina af þessum nætuflugum, þar sem veðrið hefur verið svona fjarska gott hef ég tekið upp á því að sofa úr mér út í garði eftir næturflugin og látið sólina steikja mig. Hef grætt á því ágætis lit *hóst bruna*.
Lenti í smá vanræðalegu momenti í dag þegar ég var að stíga um borð í vélina og allir farþegar voru komnir og sestir. Í staðinn fyrir að stíga yfir þröskuldinn steig ég á þröskuldinn með þeim afleiðingum að ég festist með hælinn á skónum mínum í rifuna sem hurðin er síðan lokuð í. Ég reyndi í óðaönn að losa mig með alla farþegana starandi á mig. Að lokum losnaði skórinn...........en hællinn ekki Óákveðinn. Ég þurfti því að fara niður á hné og bjarga blessaða hælnum mínum í hvelli.
Annað er ekki frásögu færandi, í bili.

Exskúse!!!!!Rori

Jæja, ég er búin að njóta mín svo mikið í sumarfríinu að ég hef ekki einu sinni nennt að blogga..........:P
Hef heldur ekki haft neitt til að blogga um. Ég vinn bara eins og vitleysingur, ýmist að fljúga eða þjóna og svo þegar upp kemur frídagur ligg ég eins og skata uppí rúmi og hreyfi hvorki á mér legg né lið. Nema kanski til að skipta um spólu.......hehehe.......
Akkúrat núna er ég samt að fela mig inni í herbergi þar sem það er barnaafmæli í gangi hérna. Allt húsið morandi í 5 ára krökkum cracked up on sugar ......... stuuuuuuuuuuuuð.

Alveg ađ koma sumarfríRori

Þá er loks farið að glitta í sumarfríið. Hópastarfinu lokið og búið að skila verkefninu. Smá kynning á þriðjudaginn og þá er þetta búið. Já, auðvitað. Ég gleymdi, það er víst eitt sjúkrapróf eftir. Jibbí jei.
En flestir aðrir sem voru heilsuhraustir í prófavikunni ættu að vera komnir í sumarfrí núna. Til hamingju með það guys. Sjáumst á næsta ári.

Jæja, hvað segiði um kosningaúrslitin?

Farin ađ sjá fyrir endann á ţessuRori

Jæja, búin að vera ein í heila viku. Heimilisfólkið fór til Svíþjóðar og hef ég verið að reyna fyrir mér í eldamennskunni á meðan. Mér tókst það heldur betur vel upp, miðað við að ég er óhæf með öllu í eldhúsinu. Ég þarf helst að fá annars manns álit hvort vatn sé farið að sjóða. En ég er afburða stolt af sjálfri mér eftir þessa viku. Fyrstu fjóra dagana eldaði ég gómsæta og ljúffenga 1944 rétti handa sjálfri mér. Það gekk afburða vel. Á fimmta degi voru hráefnin búin svo ég þurfti að spreyta mér á öðru sviði og þótt upplagt að prófa að elda grjónagraut sem ég fann einhversstaðar oní skúffu. Hann brann pínu lítið, hafði ekki þolinmæði til að hræra í honum nema örstutt við og við. Á sjötta degi rifjaði ég upp eitthvað sem ég lærði í heimilsfræði í 5.bekk, rétt með eggi og brauði. Ég hafði sko engu gleymt Glottandi. En í dag, á sjöunda og síðasta degi, finnst mér ég eiga skilið að slaka á frá eldamennskunni og pantaði þess vegna pizzu. ha ha ha.

Ameríska sendiráđiđRori

Dagurinn minn byrjaði sérdeilis vel þegar ég vaknaði 20 mínútum seinna en ég ætlaði mér og þar með var áætlaður sturtu tími á þrotum. Ég hefði nú aldeilis ekki sleppt henni og var í staðinn frekar í seinni kantinum í skólann, lítandi út eins og útigangsmaður, ómáluð með úfið blautt hárið. Snyrtitíminn fékk að víkja fyrir sturtunni, því ég ætlaði sko ekki að koma of seint.............aftur.
Dagurinn átti að byrja kl. 9 með fyrirlestri hjá Haraldi Flosa um lögfræðilegar álitsgerðir. Hann hafði hins vegar ekki haft fyrir því að tilgreina í hvaða stofu þessi fyrirlestur yrði haldin svo ég get ímyndað mér að allir hinir samnemendurnir mínir hafi farið og áreitt skvísurnar á skrifstofunni um þessar upplýsingar. Stofan sem við fórum fyrst í var svo pínu pínu lítil að sumir þurftu að standa fyrir utan stofuna. :P reyndar færðum við okkur þegar þannig var orðið. 
 

Þá þurfti ég að fara niðri í Ameríska sendiráðið til að fá Visa fyrir sumarstarfið. Auðvitað gleymdi ég vegabréfinu heima svo ég þurfti fyrst að fara heim að sækja það. Ég var tímanaum, aldrei þessu vant og áttaði mig á því þegar ég var að keyra niðrí bæ.....að ég hafði ekki hugmynd um hvar ameríska sendiráðið er.
Þannig að þá hófst leitin. Ég keyrði upp allar götur og allar trissur milli tjarnarinnar og Hallgrímskirkju. Hringdi í vinnusímann hennar mömmu sem svaraði ekki, farsíminn hennar mömmu, svaraði ekki heldur. Farsíminn hans pabba loksins svaraði .......enn ég var inneignarlaus og náði því ekki einu sinni að bera upp erindið mitt. Anywayz, ég get stolt sagt að ég viti nú hvar norska, sænska, þýska OG breska sendiráðin eru. Ég endaði á því að finna loksins það ameríska eftir að hafa krúsað upp og niður bæinn í svona hálftíma. Ég kom þar að hlaupandi, renn sveitt og ógeðsleg, enda steikjandi heitt úti. Í sendiráðinu var mjög vel tekið á móti mér með vopnaleit, skilríkjaskoðun og svo var einn vörðurinn svo sérstaklega áhugasamur um mig að honum fannst ástæða til að skoða í gegnum skólatöskuna mína áður en mér var hleypt inn. Frábært. Ég hafði sem betur fer öll gögn með mér sem þurfti að skila inn ENNNN konugreyið gat ekki tekið við korti. Aha, þannig að ég þurfti að hlaupa niður í Glitni til að fara í hraðbankann. Spurði fyrst verðina svona af hreinni tillitsemi hvort ég ætti að skilja töskuna bara eftir hjá þeim svo þeir þyrftu ekki að leita í gegnum hana aftur. Auðvitað héldu þeir þá að ég væri með sprengju. Oh, the drama. Þannig að ég tók bara töskuna með mér og þegar ég kom aftur þá fékk sömu móttökur. Taskan mín tekin og grandskoðuð aftur meðan ég fór í viðtal fyrir vegabréfsvisað...........og núna finn ég ekki Ipodinn minn. Hmmm.

Up up and awayRori

Húrra! Loksins, loksins...................eftir langar 7 vikur get ég loksins séð fram á að fá fríkvöld á virkum degi, því flugfreyjuskólinn er BÚIN. Á bara eftir smá verklegan þátt en próf og tímar ALL GONE BABY.......var í þremur lokaprófum í fluffunni í dag og er hin vonbesta að hafa náð þessu öllu svo það er útskriftin á morgun með viðeigandi látum og sukki annað kvöld........újeeeeeeeeeeee.

Það kom eitthvað stress í mig út af þessum fluffuprófum í fyrradag svo ég staulaðist upp á bókasafnið í skólanum eftir að hafa rætt heima og geima við nýsköpunarhópinn minn. Ég var ekki fyrr búin að lesa eina bls um neyðarútgönguleiðir, er ég steinsofnaði þvert yfir borðið. Ég hef ekki verið vinsæl meðal samnemenda minna sem hýstu nærliggjandi borð þ.s. ég vaknaði ca 20 mínútum síðar út af hrotunum í sjálfri mér. Ég ákvað því bara að forða mig út og læddist gegnum bókasafnið með augljóst gormabókafar þvert yfir andlitið.

Svo gat ég auðvitað ekki hamið mig í gær og þurfti frekar en að fara snemma að sofa og vera útsofin í prófinu, að kíkja á nýjustu þættina af Heroes.....................djö hvað þetta er orðið spennó.

PróflokadjammRori

Jæja, þá er próflokadjamm í kvöld og mín mætir ekki. Hrmpf, er það fara að vinna í staðinn. En það er allt í góðu því ég á í raun allavana eitt próf eftir þ.s. ég missti af félagaréttarprófinu sökum veikinda. Þannig að ég á próflokadjammið alfarið eftir.
Reyndar verður eitt próflokadjamm næsta föstudag en þá er ég að útskrifast úr flugfreyjunni......heheh, svo ég hef allavana eitthvað eftir til að hlakka til í náinni framtíð. Íhaa.
Þriðja reynsluflugið til Osló á morgun. Þriggja tíma stopp svo ég á eftir að tékka out flugvöllinn smá ;)
Jæja Hulda, geturu lifað við þetta í nokkra daga? Myndirnar koma seinna............

Klukkan

Auglýsing

Quote vikunnar

The Grand essentials of happiness are: something to do, something to love, and something to hope for.


Allan K. Chalmers

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...